Erlent

Uppreisnarmenn ná Brega aftur á sitt vald

Frá átökunum í Benghazi.
Frá átökunum í Benghazi.
Uppreisnarmenn í Líbíu fagna sigri eftir að hafa hrundið árás stjórnarhermanna sem reyndu að ná borginni Brega á sitt vald í gær.

Fyrstu fregnir í gær hermdu að herinn hefði náð borginni á sitt vald en svo virðist sem uppreisnarmenn hafi snúið vörn í sókn sem varð til þess að þeir höfðu betur.

Enn er deilt um flugbann yfir Líbíu en utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Hillary Clinton, er sögð íhuga málið af alvöru. Hinsvegar telja menn ólíklegt að Rússar fallist á flugbannið nema Gaddafi beiti herþotum sínum sérstaklega á mótmælendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×