Jón undrast aðgerðir Bandaríkjamanna 20. júlí 2011 15:02
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lýsir yfir undrun sinni á ákvörðun bandaríska viðskiptaráðuneytisins að mæla með því að gripið verði til gerða gagnvart Íslandi vegna hvalveiða hér við land. Hvalveiðarnar séu byggðar á traustum vísindalegum grunni. Um er að ræða tillögu samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði (e. Pelly Amendment Certification). Í bréfu viðskiptaráðuneytisins til Barack Obama, Bandaríkjaforseta, er mælt með því að gripið verði til tiltekinna diplómatískra aðgerða gagnvart Íslandi. Obama hefur 60 daga frest til að meta stöðuna og tilkynna Bandaríkjaþingi um hvort og þá til hvaða aðgerða hann grípi.Sjálfbærar veiðar Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir að hvalveiðar Íslendinga séu byggðar á traustum vísindalegum grunni og hafið sé yfir allan vafa að þær séu sjálfbærar. „Til marks um það er að árlegur kvóti Íslands af hrefnu er 216 dýr úr um 70.000 dýra stofni og árlegur kvóti af langreyði er 154 dýr úr um 20.000 dýra stofni. Veiðarnar eru enn fremur fyllilega löglegar og viðskipti með hvalaafurðir eru í samræmi við alþjóðlegar samningsskuldbindingar Íslands. Til grundvallar hvalveiðum hér við land liggur ályktun Alþingis frá 10. mars 1999 en þar var lýst yfir skýrum stuðningi við hvalveiðar í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar," segir í tilkynningunni.Stofninn er í góðu ástandi Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið segir að bandarísk stjórnvöld hafi einkum gagnrýnt langreyðarveiðar Íslendinga með vísan til þess að tegundin sé í útrýmingarhættu. „Þessi fullyrðing fær ekki staðist enda byggist hún ekki á vísindalegum grundvelli. Stofn langreyðar á Norður-Atlantshafi er í mjög góðu ástandi og er alfarið ótengdur stofni sömu tegundar í Suðurhöfum sem er í bágu ásigkomulagi."Áður ekki gripið til viðskiptaþvingana Þá segir ráðuneytið bandarísk stjórnvöld ekki vera sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýna langreyðarveiðar Íslendinga annars vegar en óska eftir stuðningi Íslands og annarra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins við kvóta sinn af norðhval við Alaska hins vegar. Tekið er fram að Ísland hafi stutt umræddar hvalveiðar Bandaríkjanna enda séu þær sjálfbærar. Hins vegar liggi fyrir að veiðar Íslendinga á langreyði séu ekki síður sjálfbærar en veiðar Bandaríkjamanna á norðhval. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið segir að þess beri að geta að bandarísk stjórnvöld hafi reglulega útnefnt Japan og Noreg samkvæmt Pelly-ákvæðinu, Japan vegna hvalveiða í vísindaskyni en Noreg bæði vegna vísindaveiða og atvinnuveiða. Ísland hefur einu sinni áður verið útnefnt samkvæmt ákvæðinu, árið 2004 vegna upptöku vísindaveiða á hrefnu. Ekki hefur verið gripið til neinna viðskiptaþvingana í þessum tilvikum.
Tengdar fréttir Beita refsiaðgerðum gegn Íslendingum vegna hvalveiða Bandaríkjastjórn hyggst lýsa yfir refsiaðgerðum gegn Íslendingum vegna hvalveiða síðar í dag. Um er að ræða þingunarúrræði sem beitt verður gegn þjóðum sem stunda hvalveiðar. Það er alþjóðlega fréttastofan AP sem greinir frá þessu. 20. júlí 2011 14:50 Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Sjá meira
Beita refsiaðgerðum gegn Íslendingum vegna hvalveiða Bandaríkjastjórn hyggst lýsa yfir refsiaðgerðum gegn Íslendingum vegna hvalveiða síðar í dag. Um er að ræða þingunarúrræði sem beitt verður gegn þjóðum sem stunda hvalveiðar. Það er alþjóðlega fréttastofan AP sem greinir frá þessu. 20. júlí 2011 14:50
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent