Rokkið er dautt 11. janúar 2011 10:14 Þótt Elvis sé kannski á lífi einhversstaðar virðist tónlistarstefnan sem hann átti stóran þátt í að móta vera komin að fótum fram.
Rokkið er dautt, að minnsta kosti ef marka má breska smáskífulistann fyrir síðasta ár. Breska bransatímaritið Music Week hefur tekið saman tölur benda til þess að rokkið sé búið að vera en ef litið er á hundrað vinsælustu lögin í Bretlandi á síðasta ári kemur í ljós að rokklög hafa aldrei verið færri. Aðeins þrjú rokklög verma listann. Árið 2009 var ástandið litlu skárra, en þá voru lögin þó þrettán. Þetta er algjört hrun ef litið er til síðustu áratuga og ekki þarf að leita lengra til ársins 2008 til að finna skárra ástand, en þá voru rokklögin á listanum 27. Í fyrra voru Hipp hopp og RnB lög 47, popplög voru 40 talsins og danstónlistargeirinn átti tíu lög á listanum. Það sem verra er, vinsælasta rokklagið árið 2010 var gamli slagarinn Don't stop believing, með amerísku iðnaðarrokksveitinni Journey.Það var samið fyrir þrjátíu árum en sló í gegn á ný þegar það var tekið fyrir í unglingasápunni Glee. Hin lögin tvö voru Hey, soul sister, með Train, sem fáir rokkhundar af gamla skólanum væru nú til í flokka undir rokk og ról og Dog Days are Over by Florence + the Machine. Ljósið í myrkrinu er að þótt smáskífur rokkhljómsveita seljist ekki lengur þá seljast stórar plötur slíkra listamanna enn nokkuð vel og rokkhljómsveitum gengur vel á tónleikaferðum. Aðalsprauta Bon Jovi, vinsælustu tónleikasveitar síðasta árs er 48 ára gamall og samkvæmt nýrri skýrslu Deloitte verða 40 prósent af 20 vinsælustu rokktónlistarmönnum þessa árs 60 ára eða eldri. Nýliðun í greininni er því greinilega lítil en fyrir rokkara þýðir lítið annað en að halda í vonina.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Sjá meira