Undrast hve langan tíma Svandís tók til lýsa sig vanhæfa 7. október 2010 12:00 Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra.
Ráðamenn Ölfuss undrast að nærri hálft ár skyldi líða frá því þeir sendu inn aðalskipulag sveitarfélagsins til staðfestingar þar til umhverfisráðherra lýsti sig vanhæfan í málinu. Þeir segja að þetta muni meðal annars tefja tvöföldun Suðurlandsvegar. Það var í byrjun aprílmánaðar sem Sveitarfélagið Ölfus sendi breytingar á aðalskipulagi til afgreiðslu Skipulagsstofnunar og staðfestingar ráðherra, en það fjallar meðal annars um Bitruvirkjun og tvöföldun Suðurlandsvegar. Í síðustu viku, nærri sex mánuðum síðar, lýsti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sig vanhæfa til að fjalla um skipulagið vegna ummæla sem hún hafði áður látið falla um Bitruvirkjun. Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Ölfuss, segir að Skipulagsstofnun hafi tvívegis gert athugasemdir, en eftir að þeim hafi verið svarað, hefði verið eðlilegt að umhverfisráðherra afgreiddi málið eigi síðar en í júnímánuði, enda telji hann að samkvæmt stjórnsýslulögum sé eðlilegur tími 30 dagar. Sigurður segir það ekki aðeins sína skoðun heldur allra skipulagsfulltrúa á landinu að þessi ferill í umhverfisráðuneytinu sé orðinn allt of langur. Hann segir þegar ljóst að þessi dráttur muni tefja meðal annars breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss en einnig fleiri verkefni í sveitarfélaginu. Sigríður Lára Ásbergsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, undrast það hve langan tíma það tók Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra að komast að því að hún væri vanhæf til fjalla um málið enda væru nokkur ár frá því ummæli hennar um Bitruvirkjun féllu. Sveitarfélagið þarf hins vegar enn að bíða niðurstöðu því aðalskipulagið er nú komið inn á borð annars ráðherra, Guðbjarts Hannessonar, sem hefur verið settur umhverfisráðherra í málinu.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira