Jóhanna vongóð um að betri lausn náist 27. febrúar 2010 09:00 Jóhanna Sigurðardóttir. Mynd/ GVA. „
Ég lít alls ekki svo á að það hafi slitnað upp úr viðræðunum. Málið er erfitt en ég tel að það séu tækifæri í stöðunni. Markmiðið er að ná árangri og ég hef fulla trú á að það takist." Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um stöðuna í Icesave-málinu eftir fund með forystumönnum stjórnmálaflokkanna og íslensku samninganefndinni í gærkvöldi. Jóhanna segir tilboð Breta og Hollendinga frá í síðustu viku „verulegan áfanga" en telur hægt að fá betri niðurstöðu. „Við höfum þegar náð fram verulegri lækkun á greiðslubyrðinni, um kannski 70 til 80 milljarða króna, en ég held að það sé hægt að vinna málið betur." Nefnir hún breytingar á vaxtaákvæðum, hraðari greiðslur úr búi Landsbankans og nýjar fjármögnunarleiðir. Hún metur vaxtaákvæði tilboðsins hagstætt fram til ársins 2012 en eftir það þyngist greiðslubyrðin. Því þurfi að breyta. Bretar og Hollendingar sögðu tilboð sitt þeirra síðasta og besta. Jóhanna telur að ekki þurfi að taka þau orð bókstaflega. Telur hún jafnframt að ekki hafi fengist viðbrögð við gagntilboði Íslendinga á fundi samninganefndanna í Lundúnum á fimmtudag þar sem samningamenn Breta og Hollendinga hafi skort umboð til að ræða það. Vonast hún til að samband komist á milli þjóðanna um helgina. Enn er áformað að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave fari fram eftir viku. Jóhanna segir mikilvægt að samningar takist áður; erfiðara kunni að verða að semja að henni lokinni. Aðspurð segir Jóhanna ekki koma til greina af sinni hálfu að hætta viðræðum og koma málinu fyrir dómstóla. „Við eigum ekki að gefast upp. Það eru allir möguleikar á að ljúka þessu." Uppnám málsins kosti háar fjárhæðir, það þurfi líka að taka með í reikninginn. - bþs
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Fleiri fréttir Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Sjá meira