Icelandair harmar verkfallsboðun flugvirkja Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. febrúar 2010 10:48 Icelandair óttast að um 20 þúsund farþegar verði fyrir áhrifum af verkfallinu. Mynd/ Vilhelm.
Icelandair harmar þá ákvörðun Flugvirkjafélags Íslands að boða til verkfalls dagana 22.-28. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúi Icelandair sendi fjölmiðlum. Segir hann að verkfallið geti valdið viðskiptavinum, íslenskri ferðaþjónustu og atvinnulífi miklu tjóni. Guðjón segir að Icelandair hafi á undanförnum vikum samið við aðra starfshópa án truflana á flugi og vonast sé til þess svo verði einnig nú. Í samningaviðræðum að undanförnu greini aðila fyrst og fremst á um kröfu Flugvirkjafélagsins um 25% launahækkun. Að mati Icelandair er slík krafa úr takti við það sem samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði. Guðjón segir að Icelandair hafi boðið Flugvirkjafélaginu sambærilegar kjarabætur og samið var um við aðra starfshópa á undanförnum vikum og geti ekki gengið að ítrustu kröfum flugvirkja um langtum meiri launahækkun en samstarfsmenn þeirra hafa samið um. Guðjón segir að ef af verkfalli verði dagana 22.-28. febrúar muni það hafa áhrif á ferðir tæplega 20 þúsund farþega. Unnið sé að því að ná samningum og vonist Icelandair til þess að ekki komi til verkfalls.
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira