Innlent

Amfetamínið út um glugga

Héraðsdómur Reykjanes.
Héraðsdómur Reykjanes.

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa rúmlega 300 grömm af amfetamíni í fórum sínum til að dreifa og selja.

Maðurinn var tekinn á síðasta ári í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Amfetamíninu kastaði hann út um glugga íbúðar sinnar þegar lögreglan hafði afskipti af honum. Þá hefur kona á fertugsaldri verið dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnavörslu. Hún var með smáræði af amfetamíni og kannabislaufum og 140 kannabisplöntur.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×