Enski boltinn

Donovan vill vera áfram hjá Everton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Bandaríkjamaðurinn Landon Donovan hefur notið sín vel í herbúðum Everton og hann vill gjarnan fá að klára tímabilið með félaginu. Lánssamningur hans á að renna út í lok þessa mánaðar.

„Það er möguleiki á því að ég verði hér áfram. Við vitum meira eftir helgina. Ef það gengur eftir verð ég mjög hamingjusamur," sagði Donovan eftir leik Everton og Hull í dag.

„Stuðningsmennirnir og allt fólkið hérna er æðislegt. Ég hef virkilega notið tímans hér í Liverpool."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×