Tveir breskir hermenn létu lífið í átökum við talibana í Helmandhéraði í suðurhluta Afganistan í gær.
Alls hafa 292 breskir hermann fallið í Afganistan síðan stríðið hófst árið 2001. Útlit er fyrir að stríðið í Afganistan eigi eftir að dragast á langinn næstu misserin og því nær öruggt að tala fallinna eigi eftir að hækka enn frekar.
William Hague, nýr utanríkisráðherra Bretlands, hefur sagt að hernaðurinn í Afganistan verði ofarlega á forgangslista ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum.