Innlent

John Lennon hefði orðið framúrstefnurokkari og aðgerðarsinni

Heimir Már Pétursson skrifar

Yoko Ono segir tímann líða undarlega hratt og þykir ótrúlegt að John Lennon hefði orðið sjötugur í dag. Hefði hann lifað, væri hann aðgerðarsinni og framúrstefnurokkari, segir ekkjan. Ringo Starr, annar tveggja eftirlifandi Bítla, er á landinu og verður á tónleikum Plastic Ono Band í kvöld.

John Lennon hefði orðið sjötugur í dag hefði hann lifað en hinn 8. desember verða 30 ár liðin frá því hann var myrtur í New York. Yoko Ono ekkja Lennons veitti í dag fjórum einstaklingum Lennon-Ono friðarverðlaunin.

Josh Fox fékk verðlaunin fyrir mynd sína Gasland sem fjallar um hvernig olíuiðnaðurinn hefur lagt heilu þorpin í rúst og eyðilagt vatnsból þúsunda manna með gasborunum undanfarin ár, Barbara Kowalcyk og Robert Kennar fyrir baráttunni fyrir vistrænni og heilsufarslega öryggri matvælaframleiðslu og Alice Walker höfundur Purpuralitsins fyrir baráttu hennar gegn kynþáttahatri og fyrir mannréttindum.

Borgarstjóri setti athöfnina í Höfða í dag og krafðist þess að Liu Xiaobo friðarverðlaunahafi Nóbels yrði þegar og án skilyrða látinn laus úr fangelsi í Kína.

Alice Walker sagðist hafa verið vinur John Lennons og Yoko í áratugi án þess að hafa nokkru sinni hitt þau. Henni væri heiður að taka við friðarverðlaunum þeirra. Með lagi sínu Woman is the Nigger of the World hefði Lennon búið um sig í hjarta svartrar konu og svo söng hún lagbút eftir Lennon.

Plastic Ono Band verður með tónleika í kvöld og ekki er útilokað að Ringo Starr trymbill Bítlanna komi fram með hljómsveitinni ásamt Dhani Harrison syni George Harrison en þeir eru báðir komnir til Reykjavíkur í tilefni dagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×