Enski boltinn

Eiður Smári og Peter Crouch byrja á bekknum hjá Tottenham

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen hitar upp á hliðarlínunni fyrir leik með Tottenham.
Eiður Smári Guðjohnsen hitar upp á hliðarlínunni fyrir leik með Tottenham. Mynd/Getty Images

Jermain Defoe er aftur kominn í byrjunarlið Tottenham fyrir leik liðsins á móti Blackburn hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar og mun Defoe spila við hlið Rússans Romans Pavlyuchenko í framlínunni.

Þetta er eina breytingin sem Harry Redknapp gerir frá jafnteflisleiknum á móti Fulham í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi sem þýðir að okkar maður, Eiður Smári Guðjohnsen, er einn einu sinni á varamannabekknum.



Byrjunarlið Tottenham:
Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Assou-Ekotto, Kranjcar, Modric, Palacios, Bale, Pavlyuchenko, Defoe.

Varamenn: Alnwick, Kaboul, Crouch, Eiður Smári Guðjohnsen, Rose, Kyle Walker, Livermore.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×