Innlent

Fær sekt fyrir að leka seyruvökva úr rotþróm

Sýslumaðurinn á Selfossi hefur fallist á að Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands greiði 200 þúsund krónur í sekt fyrir að leka seyruvökva úr rotþróm út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Félag sumarbústaðaeigenda kærði atvikið til lögreglu en heilbrigðiseftirlit Suðurlands hafði áður veitt Holræsa- og stífluþjónustu Suðurlands áminningu.

Fram hefur komið í fréttum Stöðvar 2 að þetta var líklega ekki í fyrsta sinn sem fyrirtækið lak seyruvökva út í umhverfið.

Fyrirtækið játaði sök og lýkur málinu með áðurnefndri sektargerð.






Tengdar fréttir

Neysluvatni stefnt í hættu

Grunur leikur á að seyruvökvi úr rotþróm hafi verið látinn leka út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Heilbrigðisfulltrúi segir neysluvatni hætta búin.

Áður hellt seyruvökva út í náttúruna

Fyrirtækið sem losaði seyruvökva úr roþtróm á vatnsverndarsvæðinu á Þingvöllum hefur áður gerst sekt um að leka slíkum vökva út í náttúruna.

Íhuga að taka sýni úr neysluvatni

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur fengið staðfestingu á því að verktaki hafi látið seyruvökva úr rotþróm leka á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Sumarhúsaeigandi fer fram á að verktakanum verið vikið frá verkinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×