Vill ekki útiloka Hreyfinguna 7. ágúst 2010 06:00 Lilja mósesdóttir
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, segir „algjörlega ótímabært" að tala um hvort hún sameinist að einhverju leyti Hreyfingunni. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, bauð þá flokksmenn VG sem vildu velkomna í sinn flokk í blaðinu í gær. Lilja segist finna fyrir miklum stuðningi almennra kjósenda VG og vilji ekki bregðast þeim nema nauðbeygð. „Það hafa margir, aðallega pólitískir andstæðingar, sagt að ég eigi betur heima þar. Margir sem kusu Hreyfinguna kusu áður VG og þetta er því svipaður kjósendahópur. Ég starfaði með Þór Saari í búsáhaldabyltingunni og hef þekkt hann lengur en marga í VG. Þannig að ég kann mjög vel við þau í Hreyfingunni. En mér líður ágætlega í VG og á þar mjög gott samstarf við marga," segir Lilja. Spurð hvort hún útiloki slíkt samstarf, jafnvel með fleiri þingmönnum úr VG, en blaðið hefur haft veður af slíkum þreifingum, segist Lilja ekki vilja svara því, hún hafi ekki hugsað þau mál í þaula: „Við vinstrimenn viljum hafa gott samstarf, og hvort sem við enduðum í sama flokknum eða störfuðum saman á ólíkum sviðum, held ég að sé bara algjörlega ótímabært að segja um. Ég væri líka mjög ánægð með það ef Hreyfingin gengi í VG!" - kóþ
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Innlent Fleiri fréttir Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Grunsamlegir póstar í umferð: „Tafarlaus aðgerð nauðsynleg“ Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Sjá meira