Enski boltinn

Langþráð mark hjá Anelka tryggði Chelsea fjögurra stiga forskot

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nicolas Anelka fagnar marki sínu í kvöld.
Nicolas Anelka fagnar marki sínu í kvöld. Mynd/AFP
Chelsea náði fjögurra stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 1-0 heimasigri á Bolton í kvöld. Þetta var frestaður leikur þar sem Chelsea var að spila í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar um helgina.

Chelsea var búið að vinna síðustu fjóra deildarleiki sína og skora í þeim 17 mörk og það bjuggust því margir við stórsigri en svo fór nú ekki. Chelsea náði þó öllum stigunum í hús og er komið í lykilstöðu í baráttu um enska meistaratitilinn.

Nicolas Anelka skoraði eina mark leiksins þegar hann skallaði inn frábæra fyrirgjöf Didier Drogba á 43. mínútu. Þetta var fyrsta mark Frakkans siðan 30. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×