Innlent

Tveir snarpir skjálftar við Vatnajökul í morgun

Jarðskjálftar mældust við Vatnajökul í morgun. Mynd/ Veðurstofan.
Jarðskjálftar mældust við Vatnajökul í morgun. Mynd/ Veðurstofan.
Tveir nokkuð snarpir jarðskjálftar urðu við Vatnajökul rétt fyrir klukkan sex í morgun.

Sá fyrri varð um 6,8 kílómetra suðaustur af svokölluðum Hamri en sá síðari er sagður hafa verið 10,5 kílómetra aust norð austur af Bárðarbungu. Skjálftarnir mældust 3,4 og 3,5 á Richter.

Nokkur skjálftavirkni var á Reykjanesi í gær og í fyrradag en þar mældust þrír skjálftanna yfir þrjá á Richter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×