Innlent

Alvarlega slasaður eftir fall

Rúmlega þrítugur sjómaður sem slasaðist þegar hann féll í lest Kristrúnar II RE á sunnudag liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans.

Að sögn Kristins Sigvaldasonar læknis eru áverkar mannsins alvarlegir. Ástand hans hefur þó lítið breyst.

Maðurinn var að taka beitu úr lest skipsins þegar óhappið varð. Skipið var stutt komið frá bryggju, og var því þegar snúið til hafnar þegar ljóst var hversu alvarlegt slysið var. - bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×