Nýir ráðherrar komnir með lyklavöld 2. september 2010 18:00 Ögmundur Jónasson tekur við embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Mynd af vef Samgönguráðuneytisins.
Lyklaskipti fóru fram í fjórum ráðuneytum seinnipartinn í dag í kjölfar uppstokkunar á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem greint var frá í í morgun. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lét af embætti sínu í dag og við því tók Ögmundur Jónasson sem jafnframt gegnir embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra. Við það tilefni afhenti Kristján Ögmundi lyklavöld af ráðuneytinu. Skömmu áður hitti Ögmundur Rögnu Árnadóttur í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu þar sem hann tók formlega til starfa. Guðbjartur Hannesson er nýr heilbrigðisráðherra. Hann tók við embætti á ríkisráðsfundi í dag. Guðbjartur tekur við embætti heilbrigðisráðherra af Álfheiði Ingadóttur, eftir breytingarnar. Hann fékk einnig lyklavöld af félags- og tryggingarmálaráðuneytinu í dag. Þar lét Árni Páll Árnason af störfum en tók við embætti efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann tók við lyklavöldum úr hendi Gylfa Magnússonar, Gylfi og Ragna hafa átt sæti í ríkisstjórn frá því í febrúar á síðasta ári en Álfheiður hefur verið heilbrigðisráðherra í tæpa 11 mánuði.Áfheiður Ingadóttir afhendir Guðbjarti Hannessyni lyklavöldin að heilbrigðisráðuneytinu.Ögmundur Jónasson tekur við embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherraRagna Árnadóttir afhendir Ögmundi Jónassyni lyklavöldin að dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu.
Tengdar fréttir Þingflokksfundi VG lokið - Einhugur innan flokksins Þingflokksfundi VG er lokið en þar voru tillögur um ráðherraskipti kynntar. Þingmenn vildu ekki tjá sig að fundi loknum en Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, sagði eftir fundinn að einhugur ríkti innan þingflokksins og að menn væru sáttur við breytingarnar. 2. september 2010 10:18 Guðbjartur inn - Kristján út og Árni skiptir um stól Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar, verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti samgöngumálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir öruggum heimildum en nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra kynnir tillögur að nýrri ráðherraskipan. 2. september 2010 09:52 Guðbjartur kominn með lyklavöld í heilbrigðisráðuneytinu Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók við lyklavöldum í heilbrigðisráðuneytinu af Álfheiði Ingadóttur forvera sínum klukkan hálffjögur í dag. Ragna Árnadóttir mun svo afhenda Ögmundi Jónassyni lykla af dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu klukkan fjögur. Svo verða lyklaskipti í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Því næst verða lyklaskipti í samgönguráðuneytinu og loks í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. 2. september 2010 15:59 Hver er þessi Guðbjartur Hannesson? Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins 2. september 2010 12:02 Nýir ráðherrar taka við - myndir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tóku við nýjum ráðuneytum á Bessastöðum í dag eins og oft hefur verið sagt frá. 2. september 2010 15:40 Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Innlent Fleiri fréttir Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Sjá meira
Þingflokksfundi VG lokið - Einhugur innan flokksins Þingflokksfundi VG er lokið en þar voru tillögur um ráðherraskipti kynntar. Þingmenn vildu ekki tjá sig að fundi loknum en Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, sagði eftir fundinn að einhugur ríkti innan þingflokksins og að menn væru sáttur við breytingarnar. 2. september 2010 10:18
Guðbjartur inn - Kristján út og Árni skiptir um stól Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar, verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti samgöngumálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir öruggum heimildum en nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra kynnir tillögur að nýrri ráðherraskipan. 2. september 2010 09:52
Guðbjartur kominn með lyklavöld í heilbrigðisráðuneytinu Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tók við lyklavöldum í heilbrigðisráðuneytinu af Álfheiði Ingadóttur forvera sínum klukkan hálffjögur í dag. Ragna Árnadóttir mun svo afhenda Ögmundi Jónassyni lykla af dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu klukkan fjögur. Svo verða lyklaskipti í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Því næst verða lyklaskipti í samgönguráðuneytinu og loks í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. 2. september 2010 15:59
Hver er þessi Guðbjartur Hannesson? Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins 2. september 2010 12:02
Nýir ráðherrar taka við - myndir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, og Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, tóku við nýjum ráðuneytum á Bessastöðum í dag eins og oft hefur verið sagt frá. 2. september 2010 15:40