Vilja Thaksin aftur til valda 15. mars 2010 01:30 Krefjast nýrra kosninga Mótmælendur í Bangkok vilja fyrrverandi forsætisráðherra Thaksin Shinawatra aftur til valda. nordicphotos/AFP
Bangkok, ap Þúsundir mótmælenda komu saman í Bangkok, höfuðborg Taílands á sunnudag. Mótmælendurnir, sem kenndir eru við rauðar skyrtur, vilja að stjórnvöld leysi upp þingið og efni til kosninga. Þannig vonast þeir til að Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra, komist aftur til valda en hann var settur af með hervaldi árið 2006 vegna meintrar spillingar og misbeitingu valds. Rauðu skyrturnar vilja meina að núverandi forsætisráðherra, Abhisit Vejjajiva, hafi komist ólöglega til valda með aðstoð hersins og gamalla valdastétta sem hafi óttast vinsældir Thaksins, einkum meðal fátækari stétta landsins. Lögreglan áætlaði að meira en hundraðþúsund mótmælendur hefðu safnast saman í borginni en mótmælin fóru friðsamlega fram. Thaksin talaði til fjöldans gegnum vefmyndavél og hvatti fólk til að halda mótmælunum áfram á friðsamlegum nótum. Abhisit forsætisráðherra lýsti því yfir í útvarpssendingu í gærmorgun að hann hygðist ekki leysa upp þingið og að mótmælin yrðu ekki barin aftur með valdi. Talsverður ótti er í Bangkok við að til átaka komi en mótmæli Rauðu skyrtanna í apríl síðastliðnum enduðu með óeirðum þar sem tveir létust og yfir 120 manns særðust. - rat
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni Erlent Fleiri fréttir Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Sjá meira