Enski boltinn

Adebayor dæmdur í fjögurra leikja bann

Ómar Þorgeirsson skrifar
Emmanuel Adebayor.
Emmanuel Adebayor. Nordic photos/AFP

Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur úrskurðað að framherjinn Emmanuel Adebayor hjá Manchester City skuli vera dæmdur í fjögurra leikja bann.

Adebayor fékk rautt spjald fyrir að slá til varnarmannsins Ryan Shawcross í 3-1 tapi gegn Stoke í FA-bikarnum og hefði eðlilega átt að sitja hjá í þrjá leiki en þar sem þetta er í annað sinn sem framherjinn kemst upp á kant við aganefndina þá var einum leik bætt við bannið.

Adebayor fékk þriggja leikja bann í september fyrir brot á Robin Van Persie í leik gegn Arsenal en þá gerði hann jafnframt allt brjálað með því að fagna marki sínu í leiknum fyrir framan stuðningsmenn Arsenal en hann lék sem kunnugt er með Lundúnafélaginu áður en hann kom til City síðasta sumar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×