Enski boltinn

Vermaelen sleppur ekki við leikbann - í banni á móti Birmingham

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thomas Vermaelen.
Thomas Vermaelen. Mynd/AFP
Thomas Vermaelen, varnarmaður Arsenal, verður í leikbanni á móti Birmingham í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi eftir að aganefnd enska knattspyrnusambandsins tók fyrir áfrýjun hans í dag og staðfesti rauða spjaldið sem belgíski miðvörðurinn fékk á móti West Ham um síðustu helgi.

Thomas Vermaelen var rekinn útaf á 44. mínútu leiksins fyrir að brjóta á Guillermo Franco sem var sloppinn inn fyrir hann eftir langa sendingu. Martin Atkinson dómari leiksins taldi að Vermaelen hafi rænt Franco marktækifæri og rak hann útaf þótt að snertingin hafi verið lítil.

Manuel Almunia varði vítaspyrnuna sem Vermaelen fékk dæmda á sig og Arsenal vann leikinn 2-0 og fékk þar með mikilvæg þrjú stig í baráttunni um enska meistaratitilinn við Manchester United og Chelsea.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×