Nani og Giggs skutu United á toppinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2010 13:40 Giggs og Nani skoruðu mörk United í dag. Nordic Photos / Getty Images
Manchester United er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Tottenham á heimavelli í dag. Ryan Giggs kom United yfir úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik en stuttu síðar jafnaði Ledley King metin fyrir Tottenham. En þá skoraði Nani glæsilegt mark og fiskaði svo undir lok leiksins vítaspyrnu sem Giggs skoraði úr. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður í liði Tottenham á 55. mínútu og komst í eitt ágætt færi í leiknum. Nemanja Vidic sá hins vegar til þess að hann náði ekki skoti að marki. Fyrri hálfleikur var nokkuð lítilfjörlegur og sérstaklega létu gestirnir lítið af sér kveða. Seinni hálfleikur var öllu fjörlegri. Víti var dæmt á Benoit Assou-Ekotto á 58. mínútu fyrir að brjóta á Patrice Evra og skoraði Giggs örugglega úr vítinu. Tottenham var mun líflegra í síðari hálfleik og Eiður Smári átti ágæta innkomu. Það var þó King sem skoraði jöfnunarmarkið með laglegum skalla. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka kom Federico Macheda inn á sem varamaður og hann var ekki lengi að láta til sín taka. Hann átti laglega sendingu inn fyrir vörn Tottenham á Nani. Hann afgreiddi knöttinn einstaklega vel í netið, með því að vippa yfir Gomes í marki gestanna. Wilson Palacios braut svo á Nani á 86. mínútu og aftur var víti dæmt. Giggs brást ekki heldur bogalistin þá. United er nú með 79 stig á toppi deildarinnar, tveimur á undan Chelsea sem á leik til góða gegn Stoke á morgun. Tottenham er enn í fjórða sætinu en getur misst það til Manchester City í dag ef City-mönnum tekst að vinna Arsenal á útivelli í dag.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira