Innlent

Gróður hefti fok á Kársnesi

Sjósundskappar og lausir hundar gætu innan tíðar leikið lausum hala á ónýttri landfyllingu.
Sjósundskappar og lausir hundar gætu innan tíðar leikið lausum hala á ónýttri landfyllingu.
Garðyrkjustjóri Kópavogs á að gera tillögur um frágang á landfyllingu vegna bryggjuhverfis á norðanverðu Kársnesi. Að því er kom fram í bæjarráði á fimmtudag frestast framkvæmdir á svæðinu og á meðan er það til vandræða. Úrgangur sé losaður í óleyfi og fok frá svæðinu valdi íbúum í grenndinni angri.

Hægt sé að sá fræi, gera hjólastíga og leyfa hundum að hlaupa lausum. Vestast á svæðinu hafi orðið til sandströnd sem nota megi til sjósunds og sjóbaða. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×