Stór hluti íbúa Húnaþings vestra og Bæjarhrepps að sökkva í skuldafen 12. mars 2010 19:00
Gjaldþrot blasir við fjórðungi heimila við innanverðan Húnaflóa eftir að stofnfjáraukning í sparisjóði breyttist í skelfilegt skuldafen. Áhrif á byggðina gætu orðið þungbær og langvarandi, að mati Byggðastofnunar. Það var í tengslum við sameiningu Sparisjóðs Húnaþings og Stranda við Sparisjóð Keflavíkur, í bjartsýni góðærisins síðla árs 2007, sem um tvöhundruð stofnfjáreigendur í Bæjarhreppi og Húnaþingi vestra skrifuðu sig fyrir nærri tveggja milljarða króna stofnfjáraukningu í tveimur áföngum. Flestir tóku kúlulán, ýmist verðtryggt eða í erlendri mynt. Byggðastofnun áætlar að skuldirnar standi nú í þremur milljörðum. Stofnféð sem var keypt fyrir lánin er svo gott sem glatað. Eftir sitja hrikalegar skuldir. 15-25 milljónir króna er algengt á heimili, en það eru líka dæmi um fjölskyldur sem skulda á annað hundrað milljóna króna. Það á við um heimilið að Auðunnarstöðum í Víðidal, en þau Júlíus Guðni Antonsson og Kristín Lundberg keyptu stofnfjárbréf fyrir dætur sínar þrjár en sitja uppi með hreint ótrúlega skuld, um 100 milljónir króna. Þegar Júlíus er spurður hvort hann sé borgunarmaður fyrir 100 milljóna skuld er svarið: "Nei". Áætlað er að fjórðungur heimila á svæðinu skuldi vegna stofnfjárkaupanna. Elín R. Líndal, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, segir að vissulega séu fjölskyldur og einstaklingar að lenda í miklu vandræðum hvar sem er á landinu. Það sem sé sérstakt við þetta mál er hve stór hluti samfélagsins þarna sé undir. Í samfélagslegum skilningi sé þetta mjög alvarlegt og stórt mál. Í sumum sveitum, eins og í Bæjarhreppi við vestanverðan Hrútafjörð, snertir málið meirihluta heimila. Oddvitinn, Sigurður Kjartansson, segir að um gríðarlega háar fjárhæðir sé um að spila. Ef þetta verði allt innheimt verði það gríðarlegur skellur fyrir samfélagið í heild sinni.Fulltrúar skuldara eiga nú í viðræðum við kröfuhafana, Sparisjóð Keflavíkur og Landsbankann, en bankarnir féllust fyrir áramót á að framlengja greiðslufrest fram í maí. Skuldadagurinn nálgast.Elín Líndal segir fólk sjá fram á að tapa ekki aðeins húsum sínum heldur einnig bújörðum og þar með atvinnu og framfærslu. Fjárhæðirnar séu slíkar að ekkert venjulegt fólki ráði við þær. Þarna búi upp til hópa venjulegt fólk sem ekki lifi mjög hátt.En hvernig gat það gerst að venjulegt alþýðufólk lenti í þvílíku skuldafeni? Meira um það á Stöð 2 á morgun.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Sjá meira