Miklar skuldir gefa ekki ástæðu til að selja Gerrard eða Torres Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2010 21:00 Martin Broughton er hér til vinstri. Mynd/AFP
Liverpool tilkynnti í dag tap upp á sextán milljónir punda á síðasta fjárhagsári sem endaði 31. júlí 2009. Þetta er mikil breyting frá árinu á undan þegar félagið tilkynnti hagnað upp á 10,2 milljónir punda. Martin Broughton, nýr stjórnarformaður Liverpool, segir að mikið tap á síðasta ári þýði það samt ekki að félagið verið að selja sína bestu leikmenn. „Það er alls engin ástæða til þess að selja annaðhvort Torres eða Gerrard. Ég vil ekki selja þá, Rafa vill ekki selja þá og það er enginn hjá klúbbnum sem ætlar sér að selja þá," sagði Broughton. „Við þurfum ekki að selja þessa menn til þess að greiða upp einhverja skuld. Torres er einn af bestu mönnum heims og öll félög vildu fá hann til sín. Við höfum hann hjá okkur og höfum ekki í hyggju að selja hann," sagði Broughton ennfremur. Skuldir Kop Holdings, eignarfélags Liverpool, voru upp á 351,4 milljónir punda í júlí á síðasta ári og það er því ljóst að staða félagsins er allt annað en góð. Amerísku eigendurnir Tom Hicks og George Gillett Jr hafa gefið út að félagið sé til sölu og stuðningsmenn Liverpool vonast örugglega eftir bjartari tímum takist að fá fjársterkan aðila til að rífa upp starfið á Anfield. Þangað til munu enskir fjölmiðlar örugglega velta sér upp úr framtíðarplönum leikmanna eins og Ferando Torres en spænski landsliðsmaðurinn hefur kallað eftir því opinberlega að félagið kaupi til sín sterka leikmenn fyrir næsta tímabil.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Fleiri fréttir Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Sjá meira