Innlent

Nítján óku of hratt í Gullengi

Mynd/Pjetur
Brot 19 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, við Laufengi. Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×