Gera þarf upp á milli krónu og evru 26. mars 2010 05:45 Mynd/Pjetur „
Fjármálafyrirtæki verða ekki hvítþvegin þótt skipt sé um stjórnendur, eigendur, nafn og kennitölu og ógreiddir reikningar eftirlátnir þrotabúum," segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Hann hélt ræðu á ársfundi Seðlabankans í gær. Sama segir hann gilda um Seðlabankann, ekki nægði að endurreisa hann og skipa nýja stjórnendur og fjármagna að nýju. „Gera þarf skýr skil milli fortíðar og framtíðar." Gylfi áréttaði í ræðu sinni að bankinn kæmi til með að gegna lykilhlutverki við að reisa nýtt fjármálakerfi. „Þegar liggur fyrir að það mun búa við mun meira aðhald af hálfu opinberra eftirlitsaðila en áður og mun stífari, skýrari og betri lagaramma en áður. Það verður jafnframt miklu minna og einfaldara en fjármálakerfið sem hrundi." Um leið segir hann ýmsum spurningum ósvarað enn. „Sú stærsta er hvaða mynt það mun nota. Óhjákvæmilegt er að fyrstu árin verður grunnur þess íslenska krónan, með öllum sínum kostum og göllum. Fljótlega munum við Íslendingar hins vegar þurfa að gera upp hug okkar um það hvort svo skuli vera til frambúðar eða hvort evran á að leysa íslensku krónuna af hólmi." Ráðherrann segist þó ekki í nokkrum vafa um að mjög erfitt verði að byggja hér upp skilvirkt fjármálakerfi án þess að það fái traustari grunn en íslensku krónuna. „Reynum við það þá munu Íslendingar fyrirsjáanlega búa áfram við óstöðugra verðlag, meiri gengissveiflur og hærri vexti, bæði raunvexti og nafnvexti, en viðskiptalönd okkar. Þá munum við jafnframt áfram ein landa í okkar heimshluta búa við tvískiptan gjaldmiðil, verðtryggðar og óverðtryggðar krónur. Kostir sveigjanleikans sem sjálfstæð mynt gefur vega ekki þungt á móti þessu," segir Gylfi og bætir við að jafnvel þótt við sættum okkur við lítið bankakerfi og að verulegu leyti einangrað frá bankakerfum nágrannalandanna, þá fylgdu því miklir ókostir að byggja það á óstöðugri mynt. - óká
Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Innlent Fleiri fréttir Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sjá meira