Ólykt og slysagildrur í ársgömlum rústum 26. mars 2010 05:30 Brunarústirnar hafa staðið óhaggaðar í rúmt ár. Íbúar í næsta húsi losa sig gjarnan við sorp í húsgrunninn og af því leggur ólykt. Þá telja íbúar í nágrenninu að rústirnar skapi slysahættu fyrir börn sem þar leika sér.Fréttablaðið / stefán
Brunarústir við Klapparstíg 17 hafa staðið óhreyfðar og óvarðar í rúmlega ár. Íbúar í nálægu húsi nota ónýtan húsgrunninn sem sorphaug og börn leika sér á svæðinu. Íbúar hafa ítrekað kvartað til borgaryfirvalda vegna málsins. Húsið á lóðinni, timburhús á steyptum kjallara, stórskemmdist í bruna 16. janúar í fyrra. Strax í kjölfarið var timburvirkið rifið vegna almannahættu, en kjallarinn stendur enn, ríflega ári síðar. Hann blasir við úr öllum áttum og börn hafa að honum greitt aðgengi. Leikvöllur er nokkra metra frá lóðinni. „Mér finnst ekki hægt að bjóða fólki upp á þennan subbuskap,“ segir Jóna Jónsdóttir, sem býr gegnt brunareitnum. Hún hefur kvartað margoft yfir umgengninni og furðar sig á því að kjallarinn standi enn óhreyfður, rúmu ári eftir brunann. „Kvartanir íbúanna eru réttmætar,“ segir Magnús Sædal, byggingarfulltrúi Reykjavíkur. „Þetta er óþolandi ástand. Það leggur af þessu ólykt og þarna er sóðaskapur.“ Embætti byggingarfulltrúa lagði til í byrjun febrúar að beitt yrði dagsektum til að knýja á um að kjallarinn yrði fjarlægður, lóðin jöfnuð og tyrfð og girt af. Í ljós kom að eigendur lóðarinnar höfðu þá sótt um byggingarleyfi á reitnum til skipulagsyfirvalda. Magnús segir að búið sé að gera athugasemdir við fyrirliggjandi teikningar. Hann búist við að málið sé nú að leysast og að kjallarinn hverfi á brott á næstu vikum. „Og því verður fylgt eftir að rústirnar fari þó svo að ekki verði af byggingu strax,“ segir Magnús. Í andmælum til byggingarfulltrúa gagnrýna lóðareigendur hversu illa hefur gengið að afla svara hjá borginni um framkvæmdareglur og tafirnar sem það hefur valdið þeim. Þá benda þeir á að brunarústirnar séu sönnunargögn í dómsmáli sem þeir standa í gegn tryggingafélögum, sem halda því fram að í grunni hússins felist verðmæti. Þar til niðurstaða fæst í málið geti þeir ekki fjarlægt það sem enn stendur eftir af húsinu. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Sjá meira