Enski boltinn

Jagielka leikur með varaliði Everton annað kvöld

Ómar Þorgeirsson skrifar
Phil Jagielka.
Phil Jagielka. Nordic photos/AFP

Varnar -og miðjumaðurin Phil Jagielka hjá Everton er óðum að verða klár í slaginn að nýju eftir að hafa misst mikið úr vegna erfiðra hnémeiðsla.

Jagielka meiddist í leik gegn Manchester City í apríl á síðasta ári og hefur verið frá síðan en leikmaðurinn hafði þá verið einn allra besti leikmaður Everton á tímabilinu og var meðal annars kallaður inn í landsliðshóp Englands fyrir vináttulandsleik gegn Spáni fyrir ári síðan.

Nú hefur verið staðfest að Jagielka muni spila með varaliði Everton annað kvöld gegn Bolton og að öllu óbreyttu ætti hann því að geta farið að spila fyrir aðallið félagsins innan skamms.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×