Milljarðar króna töpuðust á síðasta ári 2. mars 2010 02:45 Sighvatur Bjarnason VE Uppsjávarskipin veiddu nær allan makrílkvótann á rúmum mánuði í fyrra. Takmarka þurfti veiðar til að gera ráð fyrir meðafla í veiðum á norsk-íslenskri síld.fréttablaðið/óskar
Það er einróma skoðun hagsmunaaðila í sjávarútvegi að stjórn, eða stjórnleysi, makrílveiðanna árið 2009 hafi verið sóun á verðmætum. Þetta kom fram á málstofu um veiðar og vinnslu á makríl sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir fyrir skömmu. Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, telur skipulag veiðanna í fyrra hafa valdið því að 4,5 milljörðum króna minna fékkst fyrir afurðirnar en ef útgerðir hefðu getað stýrt veiðunum sjálfar. Otto James-Olsen, fagstjóri uppsjávarveiða hjá Samtökum fiskvinnslustöðva í Noregi, var sérstakur gestur málstofunnar. Hann rakti samskipti Norðmanna og Evrópusambandsins um makrílveiðar, en sem kunnugt er hafa þessir aðilar tekist hart á um veiðiréttindi. Hann kom inn á hugsanlega þátttöku Íslands í stjórn veiðanna og sagði að sú aflahlutdeild, sem Ísland kæmi til með að fá ef samningar tækjust, yrði tekin af þeim 572.000 tonna heildarkvóta sem ákveðinn hefði verið fyrir árið 2010. Steinar Ingi Matthíasson, skrifstofustjóri sjávarútvegsráðuneytisins, sagði þjóðréttarlega stöðu Íslands ótvíræða í þessu samhengi. Ísland hefur þekkst boð um þátttöku í strandríkjafundi um makrílveiðar í næsta mánuði. - shá
Mest lesið Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Innlent „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Innlent Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Innlent Hélt ræðu gráti nær Innlent Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Erlent Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Innlent Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Innlent Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Fleiri fréttir Enska verði orðin ráðandi í atvinnulífi um miðja öld Heiðra Íslendinga með því að gera 17. júní að fánadegi Hafnar fullyrðingum þingmanns um innrætingu Skrítið að vita af ósprunginni handsprengju í næstu götu Skorar á Ingu Sæland að taka slaginn Ástæða til að kanna betur tengsl ofurhlaupa og ristilkrabba Löng bið Haraldar, umdeild kynjafræði og íslenska í útrýmingarhættu Borgin leggur bílstjórum línurnar Rafmagn aftur komið á í öllum hverfum Hélt ræðu gráti nær Gripnir glóðvolgir með íslensk lundaegg í Hollandi Stúdentar leggjast gegn sameiningunni Ekki slys á gangandi vegfaranda í „hættulegum beygjuvösum“ í tuttugu ár Fullorðinn karlmaður lést í bílslysi Nýtt stjórnsýslustig framhaldsskóla: „Þetta er eins og vont trúðaleikrit“ Bein útsending: Gervigreind og vísindamiðlun Gular viðvaranir vegna úrkomu og aukin skriðuhætta Aðferðum svipi til þeirra hjá Quang Le Leiðbeinandinn á Múlaborg í gæsluvarðhaldi í mánuð í viðbót Jarðvarmi enn mikilvægari en áður var talið Hyggst leggja af jafnlaunavottun í núverandi mynd Framkvæmdum að ljúka á gatnamótum sem gera Árbæinga gráhærða Bein útsending: Jarðhiti jafnar leikinn Látinn laus en rannsókn enn í fullum gangi „Ég var svolítið bara sett til hliðar“ Sýknudómur í máli Aðalsteins gegn Páli stendur Séra Yrsa Þórðardóttir er látin Æ fleiri Íslendingar velja að eignast ekki börn Áflog og miður farsæl eldamennska Verða bílveikari í rafbílum Sjá meira