Innlent

Ölvaður á hesti hrækti á löggu

Ríkissaksóknari hefur ákært rúmlega tvítugan mann fyrir að vera drukkinn á hesti og hrækja síðan á lögregluvarðstjóra.

Maðurinn var á ferð á hestinum í Hallárdal við Hallá í Austur-Húnavatnssýslu í september 2008. Hann er ákærður fyrir að hafa verið svo ölvaður að hann hafi ekki verið fær um að stjórna hestinum örugglega.

Þegar lögregla hafði stöðvað ferð hans og var með hann í lögreglubíl á leið á Blönduós hrækti hann á lögregluvarðstjóra.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×