Lýsing stöðvar yfirtöku erlendra lána 20. febrúar 2010 05:00 „Við viljum í það minnsta að allir séu upplýstir.“ Halldór Jörgensson Forstjóri Lýsingar
Nýir lánasamningar eða yfirtökur á bílalánasamningum í erlendri mynt voru stöðvaðir hjá fjármögnunarfyrirtækinu Lýsingu eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um myntkörfulán fyrir viku. Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Lýsingar, segir ákvörðunina meðal annars hafa verið tekna af ótta við að braskarar sættu lagi eftir dóminn. Orðrómur er uppi um að einhverjir einstaklingar hafi viljað sæta lagi eftir dóminn og taka yfir bílasamninga í von um ávinning staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms um ólögmæti myntkörfulána. „Við höfum ekki gert nýja samninga eða leyft yfirtökur vegna þess að við höfum haft smááhyggjur af þessu," segir Halldór og bætir við að fyrirtækið vinni nú að því að gera lánaskjöl sín þannig úr garði að fyrri eigendur ökutækja geri sér grein fyrir því að hugsanlega geti þeir tapað réttindum. „Við viljum bara upplýsa fólk um að hugsanlega sé hætta á þessu. En við gerðum okkur grein fyrir því að hugsanlega myndu einhverjir braskarar stökkva á þetta." Halldór segist þó ekki geta fullyrt að einhverjir hafi þegar falast eftir bílasamningum með það fyrir augum að veðja á dóm Hæstaréttar. „En í öllu falli viljum við að allir séu upplýstir, bæði kaupendur og seljendur. Og þess vegna stöðvuðum við þessi viðskipti á meðan við erum að hugsa hvernig við getum komið öllum í skilning um að réttindi flytjast hugsanlega frá seljanda til kaupanda." Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Avant, kvaðst ekki vita til þess að aukning hafi orðið í yfirtöku lánasamninga hjá félaginu. Almennt segir hann fólk taka dómi héraðsdóms með „stóískri ró" og bíði dóms Hæstaréttar um málið, líkt og fyrirtækið geri. „En við skoðum þetta og sjáum strax hvort eitthvað óeðlilegt sé í gangi. Hingað til hefur sala í notuðum bifreiðum verið hæg og jöfn." Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP-fjármögnunar, segist ekki heldur hafa heyrt um „stöðutökur" í erlendum bílalánum í von um ávinning eftir niðurstöðu Hæstaréttar.- óká
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira