Beiðni Portsmouth um að fá að selja leikmenn var hafnað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2010 11:30 Frederic Piquionne hjá Portsmouth Mynd/AP
Stjórnarmenn ensku úrvalsdeildarinnar ætla ekki að heimila Portsmouth að fá að selja leikmenn utan félagsskiptagluggann til þess að safna peningum fyrir skattaskuld félagsins. „Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar getur staðfest það að beiðni Portsmouth, um að fá að selja leikmenn utan félagsskiptagluggans, hafi verið tekin fyrir á fundi. Við þökkum fyrir góða hjálp frá FIFA og enska knattspyrnusambandinu en eftir að hafa skoðað vel allar hliðar málsins er það mat okkar að þetta sé ekki rétta leiðin á þessum tímapunkti," sagði í yfirlýsingu frá stjórn ensku úrvalsdeildarinnar. Avram Grant, stjóri Portsmouth, var enn á ný spurður um fjárhagsstöðuna á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Stoke í dag. „Ég vil ekki tala um þetta því ég kom til þessa félags til að bjarga liðinu frá falli. Í hverri viku og stundum á hverjum degi kemur eitthvað nýtt upp og ég veit ekki hvort þetta getur talist sorglegt eða broslegt," sagði Avram Grant. „Við náðum góðum úrslitum á móti Southampton í bikarnum og ég taldi að þetta væri búið í bili þar sem að það væri búið að loka félagsskiptaglugganum. Það er samt ekki hægt að halda því fram að menn hjá þessum klúbbi séu ekki tilbúnir að leita nýstárlegra leiða," sagði Grant. David Gold, annar eiganda West Ham, steig fram í gær og bauð tíu milljóna punda lán til Portsmouth þannig að félagið gæti klárað tímabilið. Þarna liggur kannski næsta von Portsmouth um að forðast gjaldþrot.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Sjá meira