Bensínþurrð í Grikklandi 20. febrúar 2010 00:30
Bensínstöðvar á Grikklandi eru óðum að tæmast af bensíni og olíu vegna verkfalls tollvarða, sem hefur nú verið framlengt fram á miðvikudag þegar helstu verkalýðsfélög landsins efna til allsherjarverkfalls. Eldsneytisskorturinn er eitt fyrsta merkið um alvarlegar afleiðingar vaxandi andófs gegn sparnaðaraðgerðum stjórnvalda, sem þurfa að bæta hratt úr bágbornu efnahagsástandi til þess að standast kröfur Evrópusambandsins. Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins krefjast þess að ríkisstjórn Grikklands sýni fram á efnahagsbata fyrir 16. mars, að öðrum kosti verði þeim gert að skera enn frekar niður á fjárlögum. Grísk stjórnvöld hafa fyrir sitt leyti lofað því að minnka fjárlagahallann, þannig að hann fari úr 12,7 prósentum af vergri þjóðarframleiðslu niður í 8,7 prósent strax á þessu ári. Embættismenn í fjármálaráðuneyti Grikklands segja Evrópusambandið leggja hart að þeim að fella niður „fjórtánda mánuðinn" svokallaða, en launum opinberra starfsmanna er skipt í fjórtán greiðslur yfir árið þannig að tvær komi sem aukalaun í orlofi. Launafólk lítur hins vegar á brottnám fjórtándu greiðslunnar sem stríðsyfirlýsingu. „Aðgerðirnar verða að vera félagslega réttlátar. En það höfum við ekki séð til þessa," segir Yiannis Papagopoulos, leiðtogi gríska alþýðusambandsins GSEE. Verkfall tollvarða hefur stöðvað að nokkru bæði innflutning og útflutning, en áþreifanlegustu áhrif þess hafa verið á eldsneytisbirgðirnar í landinu. Víða þurfti starfsfólk bensínstöðva að grípa til þess að skammta viðskiptavinum sínum. Við sumar bensínstöðvar í Aþenu þurfti umferðarlögreglan að taka að sér umferðarstjórn vegna þess að langar biðraðir höfðu myndast. Í gær efndu leigubílstjórar til sólarhrings verkfalls og efndu til mótmælaaðgerða í Aþenu, þeyttu flautur og stöðvuðu umferð. Þeir eru meðal annars ósáttir við að eldsneytisskattur hafi hækkað og þeim jafnframt gert að gefa út kvittanir til viðskiptavina sinna. „Þessar aðgerðir skila ekki neinu, það eina sem út úr þeim kemur er að við missum vinnuna," sagði einn leigubílstjóranna, Anastasis Dimianidis. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Sjá meira