Enski boltinn

Skipt um gras á Wembley

Arnar Björnsson skrifar

Nýtt gras verður lagt á Wembley-leikvanginn en það verður í tíunda sinn sem það er gert frá því að nýr og endurbættur Wembley völlurinn var tekinn í notkun 2007.

Leikmenn Manchester United og Aston Villa spöruðu ekki gagnrýnina eftir úrslitaleikinn í deildabikarnum og Sir Alex Ferguson bendir á að hörmulegt ástand vallarins geti skýrt meiðsli Michaels Owen en ljóst er að hann spilar ekki meira á leiktíðinni.

James Milner leikmaður Aston Villa sagði að þjóðarleikvangurinn hefði verið í verra ástandi en vellirnir í neðri deildunum sem Villa-liðið hefði spilað á í bikarnum í vetur.

Það kostar sitt að skipta um gras á Wembley-vellinum eða um 90 þúsund pund eða um 17 og hálfa milljón íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×