Sæstrengur fyrir umframorku 12. október 2010 04:00 Kárahnjúkar skila þremur til fjórum prósentum meiri raforku en áætlað var. Fréttablaðið/Vilhelm
Raforkuframleiðsla Kárahnjúkavirkjunar hefur að meðaltali verið á bilinu þrjú til fjögur prósent umfram áætlanir á ári frá því að virkjunin var tekin í notkun. Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir að virkjunin geti framleitt nokkru meiri orku en gert var ráð fyrir í upphafi. Vinnsluaukningin fari að einhverju leyti út í almenna raforkukerfið auk þess sem samið hafi verið um aukna sölu til Fjarðaáls. Að mati sérfræðinga fyrirtækisins eru þetta um það bil 30 MW. Gróft útreiknað nemur tekjuaukinn af þessari auknu vinnslu nokkrum milljónum bandaríkjadala á ári. „Yfir sumarið er mestur möguleiki á að vinna meira rafmagn í Fljótsdalsstöð. Eitt af því sem Landsvirkjun er að skoða er hvernig mögulegt sé að fjölga þeim viðskiptavinum sem byggja á og gætu nýtt sér aukaorku sem er í kerfinu hjá okkur á ólíkum tímum,“ segir hún. Liður í því er könnun á hagkvæmni þess að leggja sæstreng til meginlandsins. „Það er ekki hugmyndin að selja orku í stórum stíl úr landi heldur orku sem ekki er hægt að nýta af því af því að hún er ótrygg,“ segir Ragna Sara. „Þetta er stór fjárfesting og það verður ekki farið í hana nema hún sé arðbær.“ -pg
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira