Átta fengu að fara heim 20. febrúar 2010 00:00 Laus úr prísund Hluti trúboðahópsins kominn heim til Bandaríkjanna.fréttablaðið/AP
Átta bandarískir trúboðar voru látnir lausir úr fangelsi á Haíti í vikunni og komu heim til Bandaríkjanna á fimmtudag. Tveir aðrir eru þó enn í haldi á Haítí og fyrrverandi lögmaður hópsins er eftirlýstur í Bandaríkjunum og víðar. Trúboðarnir tíu voru handteknir í lok síðasta mánaðar þegar þeir reyndu að komast með 33 börn úr landi yfir til Dóminíska lýðveldisins, þar sem þau sögðust ætla að setja börnin á heimili fyrir munaðarleysingja. Lögreglan á Haítí hyggst ræða frekar við Lauru Silsby, leiðtoga hópsins, og Charisu Coulter, fyrrverandi fóstru Silsby. Þær höfðu báðar komið til Haítí áður til að kanna hvort hægt væri að fá börn þar til ættleiðingar. Lögmaðurinn Jorge Puello, sem er eftirlýstur, bauð sig fram til að aðstoða trúboðana eftir að þeir voru handteknir. Puello var ákærður árið 2003 fyrir aðild að smygli á ólöglegum innflytjendum til Bandaríkjanna. Hann flúði þá til Kanada og segist vera saklaus. Hann er einnig eftirlýstur í El Salvador fyrir smygl á fólki og fékk dóm árið 1999 fyrir þjófnað. Trúboðarnir höfðu ekki fengið tilskilda pappíra hjá stjórnvöldum á Haítí áður en þeir reyndu að fara með börnin úr landi.- gb
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Vilhjálmur verður bæjarstjóri Innlent Fleiri fréttir Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Sjá meira