Enski boltinn

Huddlestone framlengir við Tottenham

Elvar Geir Magnússon skrifar
Tom Huddlestone.
Tom Huddlestone.

Tom Huddlestone hefur skrifað undir nýjan samning við Tottenham og er nú bundinn félaginu til 2015. Þessi 23 ára gamli miðjumaður hefur verið fastamaður í liðinu á tímabilinu.

Góð frammistaða gerði það að verkum að hann lék sinn fyrsta A-landsleik, 1-0 tapleik gegn Brasilíu í nóvember.

Hann kom til Tottenham frá Derby County í júlí 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×