Innlent

Vímuð kona með barn í bíl

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í bílskúr í Hafnarfirði í gær. Við húsleit var lagt hald á tíu kannabisplöntur og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Karlmaður um fertugt var handtekinn. Hann játaði aðild sína að málinu.

Þá voru fimm ökumenn teknir í Reykjavík í fyrradag og fyrrinótt fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Þetta voru tveir piltar um tvítugt og karl á sextugsaldri og tvær konur á þrítugsaldri. Önnur kvennanna lenti í umferðaróhappi, en hún var með barn sitt í bílnum.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×