Enski boltinn

Gareth Bale: Það vita allir hversu góður Pav er

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gareth Bale í leiknum í dag.
Gareth Bale í leiknum í dag. Mynd/Getty Images
Tottenham er í góðri stöðu í baráttunni um fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir flottan sigur á heimavelli í dag.

„Allir leikir eru úrslitaleikir fyrir okkur. Það er mikil barátta um fjórða sætið og allir sigrar skipta okkur gríðarlega miklu máli," sagði Tottenham-maðurinn Gareth Bale sem átti góðan leik þegar Tottenham vann 3-1 sigur á Blackburn.

Gareth Bale vildi frá vítaspyrnu í seinni hálfleik þegar Michel Salgado virtist fella hann í einu af fjölmörgu upphlaupum Bale upp vinstri kantinn. „Ég var felldur og átti að fá víti en dómarinn var ekki á sama máli," sagði Bale.

Gareth Bale hrósaði mikið Rússanum Roman Pavlyuchenko sem hefur skorað átta mörk í síðustu sex leikjum sínum.

„Það vita allir hversu góður Pav er. Hann sýndi okkur á EM 2008 hversu öflugur leikmaður hann er og hann er sýna okkur það aftur núna," sagði Gareth Bale.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×