Emmanuel Adebayor er hættur að spila fyrir landslið Tógó Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2010 18:30 Emmanuel Adebayor, fyrirliði landsliðs Tógó. Mynd/AFP
Emmanuel Adebayor, fyrirliði landsliðs Tógó og leikmaður Manchester City, hefur ákveðið að hætta spila með landsliðinu en hann er enn að glíma við eftirmála skotárásarinnar á rútu liðsins á Afríkumótinu í Angóla í ársbyrjun. Rúta Tógó varð fyrir hríðskotaárás tveimur dögum áður en Afríkukeppnin átti að hefjast og forustumenn þjóðarinnar ákváðu síðan að draga liðið úr keppni. Það hafði miklar afleiðingar, bæði fyrir keppnina en einnig fyrir framtíð landsliðs Tógó sem var dæmt í bann í næstu tveimur Afríkukeppnum. „Í kjölfar árásinnar í janúar þar sem tveir landar mínir voru drepnir af hryðjuverkamönnum í Angóla, þá hef ég ákveðið að taka þá erfiðu ákvörðun að hætta að spila með landsliðinu," sagði Emmanuel Adebayor í yfirlýsingu. „Við vorum bara fótboltamenn á leiðinni að fara spila fótbolta og koma fram fyrir þjóð okkar. Samt sem áður réðst á okkur fólk sem ætlaði sér að drepa okkur alla. Ég mun aldrei gleyma þessari stundu og ég vil aldrei upplifa slíkt aftur," sagði Adebayor í fyrrnefndri yfirlýsingu sem var gefinn út á vegum Manchester City. Emmanuel Adebayor hefur leikið með landsliðinu frá árinu 2000 og hefur skorað 16 mörk í 38 landsleikjum fyrir Tógó. Hann er langþekktasti leikmaður liðsins. Adebayor hefur fundið taktinn á nýjan leik með Manchester City og hefur skorað alls fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins.
Mest lesið Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Enski boltinn „Þegar það rignir þá hellirignir“ Fótbolti Albert fljótur að skora í bikarsigri Fiorentina Fótbolti Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Körfubolti „Komin mjög góð holning á liðið“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Sjá meira