Þorkell semur við sjálfan sig um leigugreiðslur HR Þorbjörn Þórðarson skrifar 13. janúar 2010 12:15
Eins og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi er Háskólinn í Reykjavík nálægt samkomulagi við Fasteign hf. um 40 prósent afslátt af þúsund milljóna króna leigu á nýju skólabyggingunni í Öskjuhlíð. Jafnframt mun Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. stofna sérstakt dótturfélag til að halda utan um skólabyggingu HR og hafa áform þess efnis verið samþykkt af bankaráði Íslandsbanka, en bankinn er stærsti hluthafinn í Fasteign hf. Samkomulag milli HR og Fasteignar hf. er ekki í höfn, en það ætti varla að vera mjög erfitt að færa rök fyrir ágæti þess í stjórn Fasteignar hf. því fjármálastjóri HR, Þorkell Sigurlaugsson, situr í stjórn félagsins. Hann verður því í þeirri stöðu að semja við sjálfan sig. Mikið hefur verið rætt um erfiða fjárhagsstöðu HR, en skólinn þarf nú að greiða ríflega 20 prósent tekna sinna í leigu vegna nýja hússins, eða um 600 milljónir króna á ári ef samkomulag um afslátt verður að veruleika. Jafnframt hefur skólinn laðað til sín hæfa kennara með því að greiða hærri laun en Háskóli Íslands og því er rekstrarkostnaður nokkuð ár. Þorkell Sigurlaugsson kannaðist ekki við erfiða fjárhagsstöðu skólans í samtali við fréttastofu í gærkvöldi og sagði reksturinn jákvæðan og fjárhagsstöðuna almennt góða. Samkomulag sem Fasteign hf. og Háskólinn í Reykjavík gerðu vegna hinnar nýju skólabyggingar felst í því að helmingurinn af leiguverðinu var tengdur við gengi evru, því hækkuðu leigugreiðslurnar mikið miðað við upphaflegrar áætlanir þar sem byggingarkostnaður varð talsvert hærri í kjölfar gengisfalls krónunnar. Vegna hækkunarinnar hefðu leigugreiðslur HR átt að vera þúsund milljónir króna á þessu ári, sem skólinn gat engan veginn ráðið við.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira