Cameron kominn með nauma forystu 1. maí 2010 06:00 Engin afgerandi niðurstaða fékkst út úr síðustu sjónvarpskappræðunum, en möguleikar Browns virðast þó minnstir. nordicphotos/AFP
Þótt kappræður flokksleiðtoganna þriggja í Bretlandi á fimmtudag, þær síðustu af þremur, hafi kannski þótt heldur tilþrifalitlar þá hefur það ekkert dregið úr spennunni fyrir þingkosningarnar, sem haldnar verða næsta fimmtudag. Rúmlega níu milljónir manna fylgdust með kappræðunum í beinni útsendingu, en skoðanakannanir benda til þess að David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hafi staðið sig best og mælist nú með 34-35 prósenta fylgi. Nick Clegg, leiðtoga Frjálslyndra demókrata, virðist hins vegar hafa fatast flugið eftir óvænta velgengni síðustu vikna, því flokkur hans mælist nú með 27-28 prósenta fylgi, sem er örlítið minna en 28-29 prósenta fylgi Verkamannaflokks Gordon Browns forsætisráðherra. Flokkarnir þrír hafa nú einungis fáeina daga til þess að bæta stöðu sína, en samkvæmt skoðanakönnunum er vel mögulegt að enginn þeirra fái hreinan meirihluta á þingi. Slílkt væri óvenjulegt, því 36 ár eru síðan síðast var mynduð minnihlutastjórn í Bretlandi og samsteypustjórnir eru þar svo gott sem óþekktar. Þá kæmist Nick Clegg í lykilstöðu, en hann hefur ekki viljað taka af skarið um hvort hann kjósi heldur að starfa með íhaldsmönnum eða Verkamannaflokknum. Hann hefur þó gefið í skyn að hann geti vart hugsað sér að starfa með Verkamannaflokknum nema Brown hætti í pólitík. Í kappræðunum þremur hafa leiðtogarnir helst deilt um efnahagsmál og málefni innflytjenda. Efnahagsvandi Breta er gríðarlegur, með fjárlagahalla sem nemur 30 þúsund milljörðum króna. Hver sem hreppir forsætisráðherrastólinn að loknum kosningum þarf að efna til niðurskurðar sem á eftir að bitna illa á almenningi. Allir flokkarnir þrír hafa verið tregir til að útlista niðurskurðaráform sín, enda nokkuð víst að ákveðin svör um þau efni myndu kosta viðkomandi flokk kjósendur. Innflytjendamálin hafa þó ekki verið síður hitamál í aðdraganda kosninganna. Sex milljónir útlendinga hafa flust til landsins síðan Verkamannaflokkurinn tók við völdum árið 1997. Margir Bretar kenna þeim um aukið atvinnuleysi, lág laun og útgjaldabólgið almannatryggingakerfi. Flokksleiðtogarnir þrír hafa óspart komið inn á þessi mál í sjónvarpskappræðunum. Cameron vill setja hömlur á innflutning fólks, Brown vill strangara eftirlit með aðfluttu fólki, en Clegg hefur lagt til að ólöglegir innflytjendur fái sakaruppgjöf ef þeir gefa sig fram við yfirvöld. Einmitt þetta hitamál virðist hafa gert endanlega út af við möguleika Browns í kosningunum þegar alþjóð fékk nú í vikunni að heyra hann úthúða aldraðri konu sem vildi fá svör frá honum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Sjá meira