Hannes: Hodgson er rétti maðurinn fyrir Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. júlí 2010 09:00 AFP
Roy Hodgson var í vikunni ráðinn knattspyrnustjóri Liverpool en hann hefur á löngum ferli sínum víða komið við. Hann var þjálfari Viking í Noregi frá 2004 til 2005 en þá lék Hannes Þ. Sigurðsson með liðinu. „Það kom mér ekkert á óvart að maður með hans getu og kunnáttu skuli hafa verið ráðinn til Liverpool," sagði Hannes í samtali við Fréttablaðið. „Það kom mér frekar á óvart að hann hafi ekki fengið svona stórt verkefni áður. Hann er einfaldlega í þessum gæðaflokki." Hannes segir að Hodgson sé fyrst og fremst afar skipulagður þjálfari. „Hann er með mjög fínar hugmyndir um hvernig eigi að spila og fylgir því eftir. Það er allt upp á 100 prósent hjá honum og allir leikmenn vita hvert þeirra hlutverk er upp á hár." Hodgson var síðast þjálfari Fulham þar sem hann kom liðinu til að mynda í úrslitaleik Evrópudeildar UEFA. „Árangurinn hjá Fulham talar sínu máli. Hann hafði ekki mannskap til að ná svona langt en gerði það á gríðarlega öguðum leik. Leikmenn bera mjög mikla virðingu fyrir honum og eru tilbúnir að gera hvað sem er fyrir hann." Sjálfur fékk Hannes mikið að spila undir stjórn Hodgson. „Við náðum mjög vel saman og ég tel að ég hafi lært hvað mest af honum af öllum þeim þjálfurum sem ég hef verið með." Hannes er sjálfur Liverpool-maður en hann spilaði um tíma með Stoke. „Ég hef nú mest fylgst með Stoke síðustu ár enda orðinn þreyttur á Liverpool. En ég held að það breytist núna fyrst Hodgson er kominn. Mér finnst hann rétti maðurinn til að snúa gengi liðsins við og að það hafi verið hárrétt hjá Liverpool að ráða hann. Hodgson er mikill nagli og veit upp á hár hvað hann er að gera. Hann er skemmtilegur karakter, hógvær og kurteis en þegar þess gerist þörf lætur hann í sér heyra."
Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira