Innlent

Ríkið gæti setið eftir með hundruð milljóna króna skell

Gissur Sigurðsson skrifar
Varðskipið Þór er í smíðum í Chile. Mynd/ Landhelgisgæslan.
Varðskipið Þór er í smíðum í Chile. Mynd/ Landhelgisgæslan.
Íslenska ríkið gæti fengið hundruð milljóna króna skell vegna skemmda, sem urðu á nýja varðskipinu Þór, sem er í smíðum í skipasmíðastöð í Chile. Auk þess verða margra mánaða tafir á afhendingu þess.

Flóðbylgja upp á tvo og hálfan metra gekk inn í þurrkvína þar sem skipið er, sópað undan því búkkunum, sem það stóð á, þannig að nú hallast það allt að 30 gráður í kvínni. Auk þess komst sjór ofan í vélarrúm og dælurými skipsins, sem getur hafa valdið miklu tjóni. Skipið telst í eigu skipasmíðastöðvarinnar þartil afhending fer fram, en nú þegar er búið að greiða fjóra og hálfan milljarð króna inn á kaupverðið og aðeins 700 milljónir ógreiddar. Lögfræðingar eru nú að skoða hvort stöðin er tryggð fyrir ófyrirséðum hamförum, en ef ekki gæti hundruða milljóna tjón lent á íslenska ríkinu. Flóðalda hreif annað nýtt skip úr skipasmíðastöðinni með sér á haf út og er það horfið.

Stórtjón varð einnig á stöðinni sjálfri og er talið að allt upp í ár geti liðið þar til hún verður starfhæf á ný. Að sögn Georgs Lárussonar forstjóra Landhelgisgæslunnar verður kannað hvort hægt verður að draga skipið i aðra skipasmíðastöð og klára það þar. Smíðin var á loka stigi og var vonast til að það kæmi til landsins í júni, en nú er ljóst að sú áætlun stenst ekki. Tveir Íslendingar og 4 Danir, eru ytra á vegum Gæslunnar til eftirlits og sluppu þeir allir ómeiddir. Vonast er til að þeir komist til Santiegó í dag, þaðan til New York og svo heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×