Formaður HK segir félagið ekki notað í pólitískum tilgangi 18. febrúar 2010 22:25 Kópavogur. „
Þetta bréf er ekki á vegum HK," segir formaður HK í Kópavogi, Sigurjón Sigurðsson, um bréf sem hefur ratað á félagsmenn og þeir hvattir til þess að skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn til þess að kjósa Ármann Kr. Ólafsson í prófkjöri flokksins. Bréfið er stílað á félagsmenn íþróttafélagsins en þar segir meðal annars: „Nú verðum við að sameinast og tryggja það að Gunnar I. Birgis fái ekki oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Hann er búinn að opinbera það að hann ætli sér ekki að leyfa HK að fá Kórinn og stuðlar því að félagið okkar þarf að starfa á a.m.k. þremur stöðum til þess að þjónusta börn og unglinga í Kópavogi. Það er algjörlega óásættanlegt í ljósi þess að félögin sjálf eru að mestu búin að finna lausn sinna mála en hann er búinn að stoppa það og ætlar að standa fast á þessu." Gunnar Birgisson, fyrrum bæjarstjóri Kópavogs, hafði samband við Sigurjón í dag vegna bréfsins og spurði hvort það væri á vegum íþróttahreyfingarinnar. „Gunnar hafði samband og spurði út í þetta. Það er ekki verið að beita félaginu gegn honum," segir Sigurjón en sjálfur sækist hann eftir þriðja sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. „Athygli vekur að í bréfinu segir: Ég hvet því ykkur til þess að skrá ykkur strax í dag, sama hvort þið séuð sjálfstæðismenn eða ekki, og aðstoða okkar menn til þess að berjast fyrir málstaði HK. Við viljum Gunnar burt og það þýðir að við verðum að taka þátt í prófkjörinu nk. laugardag. Ég ætla að ítreka það að þó svo að menn skrái sig þá er hægt að skrá sig úr félaginu strax eftir prófkjör. Það þarf bara að láta mig eða Sigurjón vita." Þegar Sigurjón er spurður hvort ekki sé verið að tala um hann svarar hann: „Greinilega tengist þetta stuðningsmönnum mínum en ekki félaginu." Það var fyrrverandi starfsmaður HK sem sendi bréfið út. Þegar Sigurjón er spurður hvort póstlisti HK hafi verið notaður, en foreldrar hafa meðal annars fengið póstinn í sínar hendur og eru ósáttir við það, svarar Sigurjón að það sé ómögulegt. Hann hyggist þó kanna hvort póstlistinn hafi verið misnotaður. Prófkjörið fer fram næsta laugardag en baráttan hefur verið áberandi hörð í aðdraganda prófkjörsins. Meðal annars hefur núverandi bæjarstjóri Kópavogs, Gunnsteinn Sigurðsson, sakað Gunnar Birgisson um að eiga í óeðlilegum viðskiptum við Halldór Jónsson á kostnað bæjarins. Það mál verður tekið fyrir á næsta bæjarráðsfundi Kópavogsbæjar.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira