Þvagprufa notuð til að greina krabbamein 15. október 2010 06:00 Krabbamein í blöðruhálskirtli greinist oftast hjá rosknum karlmönnum, tveir af hverjum þremur sem greinast eru yfir 70 ára að aldri. fréttablaðið/stefán
Ný bresk rannsókn gefur fyrirheit um að með einföldu þvagprófi sé hægt að greina hverjir séu líklegir til að fá krabbamein í blöðruhálskirtli. BBC greindi frá þessu í gær. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar, sem leidd er af dr. Hayley Whitaker, prófessor í Cambridge-háskóla, sýna að mögulega sé hægt að greina svokallað MSMB-prótín í þvagi. Prótínið tengist erfðabreytileika tengdum krabbameini. Hayley segir að sýni hafi verið tekin af 350 mönnum sem annaðhvort voru með krabbamein í blöðruhálskirtli eða ekki. Niðurstöðurnar hafi verið sláandi því greinileg tengsl hafi verið á milli magns MSMB-prótínsins og erfðafræðilegs breytileika sem tengist krabbameininu. Frekari rannsókna er þörf en ef niðurstöður þeirra verða í takt við væntingar rannsakenda gætu þær leitt til þess að hægt verði að framleiða tiltölulega ódýrt þvagpróf, sem myndi kosta um þúsund krónur í Bretlandi. Í dag er notast við svokallað PSA-blóðpróf til að greina krabbamein í blöðruhálskirtli en samkvæmt BBC er það próf ónákvæmt. Laufey Tryggvadóttir, klínískur prófessor við Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Íslands, segir of snemmt að segja nokkuð til um hvort þetta próf verði að veruleika. „Það á eftir að prófa hversu vel þetta próf spáir fyrir um krabbameinsgreiningu með frekari rannsóknum,“ segir Laufey. „Þær prófanir munu taka einhvern tíma. Ef niðurstöðurnar verða jákvæðar verður þetta hugsanlega nothæft. Í dag er mest þörf á prófum sem greina það hvort krabbamein í blöðruhálskirtli sé alvarlegt eða sofandi, hvort það leiði til dauða þess sem greindur er eða hvort það hafi engin slæm áhrif á viðkomandi. Óvíst er hvort þetta próf leysir þann vanda. Kannski vita það ekki allir en ef krabbameinið er sofandi geta menn lifað með því alla ævi án þess að kenna sér nokkurs meins.“ trausti@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira