Innlent

Fundi lokið – Engin ákvörðun um nýja samninga

Ingimar Karl Helgason skrifar

Fundi íslensku Icesave samninganefndarinnar við Breta og Hollendinga er lokið. Fundurinn var gagnlegur, segir Elías Jón Guðjónsson, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, og stendur til að halda viðræðum áfram. Hins vegar hafi Bretar og Hollendingar ekki fallist á að taka upp að nýju samningaviðræður um Icesave.

Íslenska samninganefndin reynir að sannfæra Breta og Hollendinga um að taka viðræður upp að nýju. Forystumenn stjórnar og stjórnarandstöðu náðu saman eftir marga fundi um markmiðin. Ekki hefur fengist staðfest hver markmið samninganefndarinnar eru.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í hádegisfréttum Rúv, að nefndin hefði samningsumboð fyrir Íslands hönd. Þá gat hann þess einnig að ekki væri útilokað að hætt yrði við þjóðarakvæðagreiðslu um lög um Icesave 6. mars. Alþingi samþykkti þau í lok síðasta árs, en forseti synjaði þeim svo staðfestingar snemma í janúar.

Næsti fundur samninganefndarinnar við Breta og Hollendinga hefur ekki verið settur á dagskrá.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×