Hefðu hugsanlega átt að upplýsa fleiri Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. ágúst 2010 18:31 Svein Harald Oygard var seðlabankastjóri þegar að álitið var unnið. Mynd/ Anton.
Seðlabanki Íslands telur að hann hefði hugsanlega átt að upplýsa forsætisráðuneytið, fjármálaráðuneytið og Fjármálaeftirlitið um lögfræðiálit sem lögmannsstofan Lex vann fyrir bankann í fyrrasumar og laut að gengistryggingu lána. Þetta kemur fram í svari sem Seðlabankinn sendi til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í morgun. Bankinn segir að það sé jafnan nokkuð álitaefni hvernig fara skuli með upplýsingar sem opinberar stofnanir hafi undir höndum. „Það kemur oft ekki í ljós fyrr en eftir nokkurn tíma hver raunveruleg þýðing þeirra er. Í ljósi þess að nú virðist hugsanlegt að áhrif hæstaréttardómsins um ólögmæt gengistryggingarákvði skuldbindinga í íslenskum krónum gætu orðið meiri en upphaflega var talið, mætti e.t.v. draga þá ályktun að heppilegra hefði verið að upplýsingar um niðurstöðu fyrrnefnds álits hefðu fengið víðtækari dreifingu í stjórnkerfinu en raun varð á. T.d. kynni að hafa verið eðlilegt að koma efni þess á framfæri við Fjármálaeftirltið með beinum hætti, og einnig fjármálaráðueytið og forsætisráðuneytið, sem á þeim tíma fór með efnahagsmál. Þetta eru hins vegar ályktanir sem draga má á grundvelli upplýsinga sem nú liggja fyrir, en voru ekki eins augljósar þegar umrætt minnisblað kom fram," segir í svarinu. Í svarinu, sem Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri undirrita, segir að álit Lex hafi lotið að lögum um vexti og verðtryggingu, sem heyri undir efnahags- og viðskiptaráðuneytið, en einnig um reglur um gjaldeyrismál sem settar séu með samþykki efnahags- og viðskiptaráðherra. Vísir bauð Svein Harald Oygard, sem var seðlabankastjóri á þeim tíma þegar álitið var unnið fyrir Seðlabankann, að tjá sig um málið. Hann sagði, í tölvupósti til Vísis, að hann hefði tekið þátt í að undirbúa svar Seðlabankans til forsætisráðherra og vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira