Innlent

Viðbragða við svarbréfi beðið

Ekki fengust formleg viðbrögð við svarbréfi íslenskra ráðamanna við tilboði Breta og Hollendinga um lausn Icesave-málsins í gær. Óvíst er að þau fáist í dag en í stjórnkerfinu er vonast til að þau fáist fyrir vikulok.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins átti Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra samtöl við ráðherra í Bretlandi, Hollandi og Noregi í gær. Hollenski fjármálaráðherrann, Wouter Bos, lét af embætti í gær í framhaldi afsagnar ríkisstjórnar landsins, og var eitt hans síðasta embættisverk að ræða við Steingrím J. Sigfússon.

Samtölin voru óformleg og í þeim fékkst ekki ádráttur um svör eða nýtt tilboð.

Hluti íslensku samninganefndarinnar hélt til Lundúna í gær og er þar reiðubúinn að ganga á fund með Bretum og Hollendingum, þegar og ef til hans verður blásið. Ytra eru formaðurinn Lee C. Buchheit, Guðmundur Árnason og Lárus Blöndal. Heima sitja Einar Gunnarsson og Jóhannes Karl Sveinsson.

Þó að alls óvíst sé hvenær svarbréfi Íslendinga verður svarað og jafnóvíst sé á hvaða nótum svarið verður ríkir enn sæmileg bjartsýni meðal íslenskra ráðamanna. Þeir benda jú á að engum dyrum hafi enn verið lokað. Tími til samninga sé þó naumur.

- bþs, kóp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×