Nelson Mandela mætir bæði á opnunar- og lokahátíð HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2010 20:00 Nelson Mandela í hópi landsliðsmanna Suður-Afríku. Mynd/AFP
Nelson Mandela hefur staðfest það að hann muni mæta bæði á opnunar- og lokahátíð HM í Suður-Afríku sem hefst eftir rúma viku. Báðar eru hátíðarnar í tengslum við leiki og fara þær báðar fram í Jóhannesarborg. „Madiba mun heiðra okkur með nærveru sinni á báðum hátíðunum," sagði Jackson Mthembu talsmaður afríska þjóðarráðsins og notaði þar með ættbálkanafn Nelson Mandela. Suður-Afríka mætir Mexíkó í opnunarleik HM á föstudaginn eftir rúma viku en úrslitaleikurinn fer síðan fram 11. júlí. „Við erum mjög stoltir af því að Mandela heiðri okkur á þessum mikilvæga tímapunkti fyrir suður-afrísku þjóðina. Ég er mjög ánægður með að Mandela kemur. Madiba-töfrarnir gera þetta enn meira spennandi," sagði Mthembu. Nelson Mandela er orðinn 91 árs gamall og hætti að koma opinberlega fram árið 2004. Hann kom þó óvænt fram á fundi á vegum afríska þjóðarráðsins fyrir kosningarnar í fyrra. Mandela á að söfn talsmanna FIFA, sinn þátt í því að Heimsmeistarakeppnin fer nú í fyrsta sinn fram í Afríku. Hann hefur stutt við íþróttalífið í Suður-Afríku og það er fræg koma hans á úrslitaleik HM í rúgbý árið 1995 þegar Suður-Afríka tryggði sér gullið. Það má sjá fjallað um það í myndinni Invictus þar sem Morgan Freeman lék Nelson Mandela og var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir. Mandela mætti einnig á úrslitaleikinn þegar Suður-Afríka vann Afríkukeppni landsliða á heimavelli árið 1996. Mandela mætti í búningi sinna liða á báða þessa leiki og hlaut mikið lof fyrir.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira